Monday, March 19, 2012

iPad: Ljónin í veginum


Ragnar Þór var um helgina með erindi á ráðstefnu 3f, HR og Epli.is um framtíðina í menntamálum. Það var tekið upp:




Hér eru glærurnar:
Glærur

Tuesday, March 13, 2012

Myndljóð

Visual Poet er ákaflega sniðugt app sem auðvelt er að nota í kennslu. Með því er leikur einn að blanda saman texta og myndum í fallega heild. Þú getur notað þínar eigin myndir eða fengið myndir af netinu.  Forritið skráir höfunda mynda sem þú notar svo kjörið er að kenna nemendum að bera virðingu fyrir hugverkum annarra.

Bæði er hægt að nota appið til að láta nemendur skapa:


Eins er auðvitað kjörið að nota forritið við tungumálakennslu. 



Nemendur geta sent kennara myndirnar beint með tölvupósti. 

Sinfónía í pöddunni

Eitt bráðsniðugt tónlistarapp kallast WI Orchestra (frá Wallander Instruments). Grunnútgáfan er ókeypis en hægt er að kaupa fleiri hljóðfæri til að auka við úrvalið.


Hljóðfærin eru mjög áheyrileg og nemendur eiga auðvelt með að spila saman í litlum hópum. Eitt það skemmtilegasta við forritið er að hægt er að kveikja á hljóðnemanum og spila á pödduna eins og lúður, klarínett, flautu eða saxófón. Þá blæs maður á hljóðnemann og hann nemur styrkinn og leikur aðeins nótur þegar blásið er og hljóðið er því hærra sem blásturinn er kraftmeiri.


Hér má sjá stutt myndband um forritið:


Vandamál með Gmail

Við fórum þá leið að stofna gmail eftir forskriftinni nafnnemandanemi@gmail.com. Það er í samræmi við nafnkennarakennari@gmail.com sem við höfum notað ansi lengi. Við notuðum þau netföng sem Apple ID.

Það hefur ekki gengið þrautalaust. Þótt búið sé að opna fyrir Gmail í eldvegg skólans lenda nemendur oft í því að paddan geti ekki sótt póst. Þá þarf að logga sig inn á gmailinn úr tölvu og yfirleitt fara í gegnum einhvern staðfestingarferil. Þrír nemendur hafa lent í því að netföngum þeirra hefur verið lokað fyrirvaralaust.

Ástæðan er ókunn en hugsanlegt er að gmail tortryggi mikla umferð frá sömu IP-tölu og hafi einhver ofnæmisviðbrögð af þessu tæi.

Eftir á að hyggja hefðum við kannski átt að nota netföngin sem nemendur hafa fengið hjá UTM.

Tuesday, March 6, 2012

Hagnýt atriði



Hér má sjá hvernig tengja má iPad við þráðlaust net. 

Að skipta um lykilorð á Apple ID.



Hér má skipta um lykilorð á Apple ID.

Monday, March 5, 2012

Sverrir Guðmundsson: Notkun upplýsingatækni í náttúrufræðinámi


Sverrir Guðmundsson skrifaði ritgerð um notkun upplýsingatækni í náttúrufræðikennslu. Þar ræðir mann m.a. um þróunarverkefnið okkar. Sjá má ritgerðina hér:

Sækja:
.pdf

Saturday, March 3, 2012

Framtíðin í spjaldtölvumálum?

Eftir því sem ég sé nemendur nota iPaddana meira kemst ég á þá skoðun að lyklaborðið sé ekki vandamál. Möguleikarnir til að komast hjá þeim vanda sem það kann að skapa eru óteljandi. En þar fyrir utan er þráðlaus lyklaborð alltaf möguleiki.

Miklu áhugaverðara finnst mér að nú er rithandagreining orðinn raunhæfur möguleiki, bæði á texta og t.d. jöfnur. Sjá má áhugaverð dæmi hér.




Þetta þýðir auðvitað að hægt er að smíða tól sem umbreyta handskrifuðum texta í vélritaðan á tölvuverðum hraða og með mikilli nákvæmni. Tenging við orðalista Árnastofnunar gæti gjörbreytt skriftarkennslu. Nemandi gæti skrifað og fengið stöðuga endurgjöf fyrir hvern einasta staf sem hann skrifar. Stafir gætu litast með rauðum, gulum og grænum lit t.a.m. eftir því hversu vel þeir væru dregnir og sprottið gætu fram skriftaræfingar sem taka sérstaklega á þeim hreyfingum/stöfum sem upp á vantar.

Stafsetningarkennsla býr við svipaða möguleika.

Og stærðfræðin.



Það má gera öpp sem greina hverja línu í útreikningi og umbreyta í texta og tákn í snyrtilegri vinnubók. Í hvert skipti sem stokkið er yfir skref í útreikningi (sé lögð áhersla á nákvæma útreikninga) eða gerð villa getur komið fram villuboð. Nemandinn getur þá staldrað við og t.d. væri hægt að setja forritið þannig upp að ef hann eyðir meira en 2 mínútum stopp á dæminu eða gerir 3 gallaðar tlögur að framhaldinu þá bjóðist honum að sjá myndband með kennslu um þetta tiltekna atriði.


Ekki það, að kennsla á þessum nótum væri að mínu mati alls ekki ákjósanleg. En hún getur verið gagnleg til að þjálfa ákveðna grunnfærni. Spjaldtölvur bjóða upp á svo miklu betra nám ofan á svona kennslu.

Tengsl við hefðbundari tölvur

UTM er með til skoðunar ofsalega áhugaverðan möguleika í þróun tölvumála. Ég er á því að sá kostur sé frábær og að spjaldtölvuvæðing muni óhjákvæmlega leiða af sér slíka möguleika.

Spjaldtölvur hafa annmarka. En þær hafa ótrúlega snjalla leið til að komast hjá þeim annmörkum. Spjaldtölvan sem ég er með er 16 GB. Sjálfur á ég mörg hundruð GB af kennslumyndböndum og fræðsluefni sem ég vil geta skoðað í spjaldtölvunni. Ég vil líka geta unnið í Word, Excel og skoðað Flash.

Ég get þetta allt nú þegar.

Fjöldinn allur af öppum (og nokkur ókeypis) bjóða mér að tengja iPaddinn þráðlaust við fartölvuna. Sum eru hönnuð sérstaklega til að streyma myndböndum og tónlist þráðlaust, önnur yfirtaka tölvuna í heild sinni.

Eitt heitir LogMeIn.


Með því „logga“ ég mig inn á tölvuna mína og sé skjáinn á henni í spjaldtölvunni. Ég get opnað allt og unnið í skjölum eins og ég vil. Ég get notað fingrahreyfingar til að stækka og minnka hluta á skjánum og lært margar flýtibrellur með fingrunum.

Með þessu móti get ég horft á flash-myndbönd og leiki og unnið í forritum sem ekki eru til á spjaldtölvum.

Að vísu er tilfinningin öll ansi klaufaleg ennþá (t.d. fyrir þá sem nota flýtitakka mikið) en það eru allt smámunir.

Airplayit er app sem ég prófaði í gær. Það virkaði hnökralaust. Með því get ég horft á kvikmyndirnar á harðadisknum í tölvunni á iPaddinum í fullum gæðum og án hökts.


Bæði þessi forrit og öll álíka krefjast þess að sett sé upp forrit á „móðurtölvunni“ sem spjaldtölvan vinnur með.

En hvað þýðir þetta?

Jú, auðvitað það að möguleg framtíðarsýn tölvumála í skólum verður að endatækið skipti ekki lengur öllu máli. Að sett verði upp risastór tölvubú þar sem sérhæfðir starfsmenn sjá um tækin og uppfæra eftir þörfum.


Þessar tölvur minna á upphafsdaga tölvutækninnar þegar tölvur fylltu heil herbergi en í stað þess að vera ein tölva þá eru þetta mörg hundruð eða þúsund tölvur í eini knippi. Búið er að úthluta einstökum notendum sínu plássi, aðgangi að forritum, myndefni, tónlist, upplestri, hljóðbókum o.s.frv.

Notandinn er svo með tæki sem hefur samskipti við „móðurtölvuna“ gegnum þráðlaust net og ljósleiðara. Tækið getur verið spjaldtölva, sími eða eitthvað þar á milli.

Auk þess hefur nemdandinn öpp á tækinu sem hann getur unnið í heima eða úti þar sem ekki er netsamband – og sem hann getur unnið í ef rafmagnið fer eða netið dettur út einhvern skóladag.

Fyrst um sinn

Þetta þarf alls ekki að vera svo fjarlægur möguleiki. Sameignakerfi borgarinnar er vísir að þessu. Kerfið er til í stórum dráttum. En fyrst um sinn gætu þeir skólar sem taka upp fjartækni (mobile technology) sett upp sína eigin miðlara – og miðlað af þeim um þráðlaust net. Á þeim geta verið hljóðbækur, kvikmyndir og annað þungt efni sem nemendur mega nálgast. Netin eru rekin innan skólans og nemendur geta streymt efninu í tækin sín. Þar með erum við komin ansi langt frá gömlu sýningarvélinni sem sýndi öllum nemendum sömu myndina á sama tíma.