Í Ástralíu stendur víða yfir markviss og metnaðarfull 1:1 innleiðing á notkun iPad í kennslu. Þessi bæklingur er sérlega skýr og vel framsettur.
Mikið magn mjög gagnlegra upplýsinga á einum stað. Kennsluhugmyndir og dæmisögur í bland við fjölmargt fleira.
Spjaldtölvur eru alls ekki bara leikjatölvur eins og reynslan er byrjuð að sýna. Frá þessari síðu liggja margir þræðir sem fróðlegt er að skoða.
Á vef Námsgagnastofnunar má finna fjölmörg dæmi um verkefni og námsvefi á íslensku. Sumt er ekki hægt að nýta að fullu í iPad en annað virkar mjög vel.
Stjörnufræðivefurinn er í algjörum sérflokki þegar kemur að ókeypis vísindamiðlun á íslensku. Þessi verðlaunaði vefur er þegar orðinn að alfræðiriti um stjörnufræði og meira efni verður til í hverri viku.
No comments:
Post a Comment